Dísin eina:)

21.05.2008 11:59:43 / Unde

Þá er alveg að koma að þessu...

Góðan og BLESSAÐAN daginn elskurnar mínar:haha:
ég ætla að henda inn smá bloggi á meðan litli anginn minn sefur;) Af okkur er allt gott að frétta, ég er komin með vinnu víííí. Fékk vinnu á leiksskólanum upp á Velli og þetta er hjallastefnuleiksskóli, ég hlakka til að fara að vinna á þannig leiksskóla og sjá hvernig hjallastefnan virkar. Annars þegar ég fór í atinnuviðtalið hjá þeim var mér sýnt allt og mér leist mjög vel á þetta hjá þeim:d  ég var líka búin að sækja um fyrir Mikael Aron á þessum leiksskóla þannig það væri frábært og bara mjög þægilegt að geta haft hann á þeim leiksskóla, en hann yrði væntanlega ekki á sömudeild og mamma sín8| en ég veit ekki á hvaða deild ég verð né hvernig vinnu tíminn verður, en ég sagði þeim að ég þyrfti að fá að mæta rétt yfir 8 og fá að fara rétt fyrir 4 til að geta náð í litla bjútíboltann minn til dagmömmunar. Þannig ég verð kannski ekki alveg í 100% starfi sem er alveg allt í lagi:o væri mest til á vera vinna bara til 14 og ná þá í litla snúllan minn en ætli að hann verði hvort eð er ekki sofandi á þeim tíma og svo muna 2 tímar engu:) svo lokar leiksskólinn 15 júlí og dagmamman lokar á sama tíma þannig ég verð heima með gullinu mínu til 19 ágúst:) en það þýðir samt launalaust frí, en það verður bara að hafa það. Græði samt meiri tíma með hnoðranum mínum:d
En í dag er 21. maí sem þýðir það að Mikael Aron er 9 mánaða í dag!! Jíííí hvað tíminn flýgur áfram, flýgur bara ALLT of fljótt áfram:|  Við erum bara að njóta síðustu orlofsdagana okkar saman enda er hann orðinn algjör mömmugaur! sér ekkert nema mömmu sína awwwwww;) hef bara nett gaman af því!... svo er það bara aðlögunin í næstu viku, úúúffff komið að því! vildi stundum geta stöðvað tímann eða látið hann líða hægar hihihi:lol: það er komið að því sem ég er búin að kvíða fyrir í marga mánuði, aðlögun og ný vinna heheheh er farin að hljóða eins og kvíðasjúklingur...spurning um að gera eitthvað í því PAHHAHAHAHAH:lol:
EN annars er lífið í Kef city bara drullu fínt! vantar samt rosalega stundum að hafa vinkonur mínar hér og þar sem bíllinn minn er bilaður þessa dagana og kemst ekki í lag fyrr en um mánaðarmótin kemst ég ekkert nema fótgangandi..spurning um að skella hnoðranum mínum bara á bakið og labba til RVK heheheh..jahhh það tæki mig kannski BARA nokkra KLUKKUTÍMA hihihih:lol:
Hildur syss og Sara Lind mín komu til okkar um síðustu helgi og það var svo gaman að fá þær:lol:  Við vorum öll að spila Guitar Hero og ég verð að segja að ég var orðin nokkuð góð bara hihihi svo þegar Reynir fór að sofa var ég og syssa vakandi langt fram eftir og mössuðum þetta hehehe:lol: svo á laugardeginum var rölt niður í bæ og farið í búðir og svona gaman:) Sara mín á afmæli á mánudaginn og er að verða 5 ÁRA!!! vááá finnst hún hafa fæðst bara í gær, svo stutt síðan ég hélt á henni alveg nýrri og pínulítilli! svo fer hún í skóla á næsta ári JEDÚDDA MÍA, hún fermist áður en maður veit af hihih:lol: Mikael og Söru kemur svo vel saman og hann gjörsamlega dýrkar hana og finnst hún svo sniðug enda er hún það líka! og svo er hún líka alltaf svo góð við hann og vill alltaf vera að halda á honum og knúsast með hann enda má hún það alveg því nú er hún sko STÓRA frænka:) bara yndisleg!!

en jæja ætla að fara að gera eitthvað af viti og kíkja svo í labbitúr í rigningunni meðl litla hnoðrann minn:) skelli inn nokkrum myndum svona í restina;)

p.s ekki gleyma að kvitta;)

Later

Hafdís Gunnarsssssssssssssss;)




alltaf brosandi þessi elska:*




Litla bjútí að fara í bað í eldhúsvaskinum hjá Helgu ömmu



Sara Lind og Mikael Aron, fallegustu börnin!



Sara Lind svo dugleg að þvo mér



awwww svo dædur:)



fallegasta frænkan mín:)



litli snúllinn lasinn með mislingabróðir..en samt er alltaf stutt í brosið:))



» 3 hafa sagt sína skoðun

07.05.2008 00:07:48 / Unde

Nýjir tímar

Jæja er ekki komin timi á smá blogg??

Haldiði að kjéllan sé ekki bara búin að kaupa sér kort í ræktina jeijjjj LOKSINS!!! er á námskeiði 3 x í viku en það er reyndar bara í 4 vikur en hefur venjulega verið í 8 vikur en er svona stutt núna vegna þess að þetta er seinasta námskeiðið fyrir sumarfrí, þannig ég ætla að kaupa mér kort og vera dugleg í sumar og fara svo aftur á námskeið hjá henni í haust jeijjjj. Mér finnst þetta æði!:haha: Ég hef aldrei verið í jafn slæmu formi og ég tók eftir því í tíma í seinustu viku hvað ég var öll rosalega stirð og í mínu VERSTA formi!!:s sem er kannski ekki skrítið því ég hef ekkert gert eftir ég átti Mikael Aron:$  Þótt ég sé bara nýbyrjuð að þá er mér stax farið að líða betur á sálin sem skiptir ekki minna máli en að líða vel líkamlega:) ég veit að ég á mikið verk fyrir höndum  og ég veit að þetta getur tekið einhvern tíma að komast í almennilegt form en það verður þá bara þannig, mestu máli skiptir að mér líði vel á sál og líkama:haha: en ég hlakka til þegar ég er farin að sjá árangur, það er svo gaman!! og ég ætla svo sannalega að vona að mjaðmirnar fari nú að skreppa  aðeins saman ohhh, ég hef nú kannski aldrei verið mjaðmalítil en mér finnst þær engan veginn vera að skreppa saman en það gerist vonandi bara með tímanum, annars er ég bara stolt að vera með smá ummerki að hafa gengið með barn og finnst að allar konur sem eru búnar að eiga börn og eru eitthvað óánægðar með einhverja líkamshluta eftir barneignir ættu að frekar að fyllast stolti, því við fengum yndislega gullmola sem eru það dýrmætasta sem við eigum  :haha:

En alla vegna...
Ég er búin að vera að leita mér að vinnu núna undanfarið og hef farið í 2 atvinnuviðtöl í leiksskólum í vikunni. og það ótrúlegasta er eins og það vanti ekkert fyrr en þegar líða fer nær haustinu eða í ágúst!! og ég sem hélt að það væri mannekla hér eins og í RVK...:| ég er að leita mér að vinnu til 15.30/15.45 því dagmamman sem Mikael Aron fer til er til 16 á daginn og enda finnst mér líka alveg nóg að hafa hann til 16 á daginn, vildi svo óska að ég gæti verið með hann lengur heima en eins og staðan er í dag gengur það ekki....:cry: ein var til í að ráða mig til 16 í sumar en vildi svo að ég yrði til 17 í haust, en það bara henta engan veginn..en ég ætti að fá að vita hvernig er með hinn staðinn í þessari viku eða næstu viku, en þar vantaði reyndar ekki fyrr en í ágúst,...en vonandi verð ég heppin!! úúffff mér kvíður svo fyrir að fara frá litla snúllanum mínu og er með rishnút í maganum:cry: held að þetta verði erfiðara fyrir mig en hann hihihi:$ en ef hann verður ánægður verð ég ánægð, því auðvitað líður manni vel ef krílunum manns líður vel:)  ég vissi alveg að þetta yrði ekki létt fyrir mig að fara frá honum en váá ekki grunaði mig að það yrði SVONA erfitt! Mikael er orðinn svo mikill mömmustrákur núna þannig ég vona að það gangi bara allt vel hjá dagmömmunni og hann verði bara sáttur:)
Én þótt mamma hans sé eins taugahrúga þessa dagana að þá er hann mjög slakur og orðin svo duglegur:) hehehe en hann er farinn að skríða, vinkar bless og sagði mamma um helgina jeijjjj, mér finnst ég sjá daga mun á honum og finnst ég alltaf vera að sjá hann þroskast meira og meira, hann er alltaf að uppgötva eitthvað nýtt og skemmtilegt og það er svo gaman að fylgjast með honum:) hann er svo mikið yndi!! og kann alveg að bræða hjartað í mömmu sinni:haha: Ég ELSKA hvað hann er mikill knúsari og vill láta knúsast í sér, þótt hann sé stanslaust á hreyfingu og fjörugur að þá vill hann alltaf vera að knúsast mömmu hans til mikillar ánægju:)

Þetta er bara allt svo skrítið og svo mikið nýtt í gangi, en það verður bara gaman að takast á við það, því eins og er sagt að nýjir hlutir merkja nýtt upphaf :haha: og það er bara gaman af því!
en ætla að fara að sofa í hausinn á mér, er að leka niður af þreytu!! erum að fara að fá gesti á morgun því þá koma Anna Bára og Sigmar Kristinn til okkar á morgun jeijjjj , og ég ætla að bjóða Önnu Báru í pastarétt í hádeginu NAMMI NAMM, við hlökkum sko til að fá þau:haha:

LATER

Dísin:þ

» 3 hafa sagt sína skoðun

30.03.2008 00:08:24 / Unde

Ég er risin upp!!

Já það er rétt!! ég er risin upp hihihi:$ eftir smá þrýsting ætla ég að reyna að byrja að blogga aftur veeiiii;)
Þar sem ég er búin að vera í árs "leyfi" frá blogginu hef ég frá ýmsu að segja og MARGIR hlutir búnir að gerast:d Og árið 2007 er besta árið sem ég hef upplifað og vonandi koma fleirri svona góð í kjölfarið, en það sem stóð upp úr árinu var fæðing sonar míns og að eignast barn:d
Eins og flestir vita að þá er ég og Reynir búin að eignast yndislegan strák og heitir hann Mikael Aron og er líf mitt og yndi, hann fæddist 21. ágúst 2007:haha: og sú lífsreynsla að eignast barn er sú besta og yndislegasta sem ég hef upplifað! Og ég hreinlega elska það að vera mamma:d Nú er litli ormurinn minn orðinn 7 mánaða og ég er varla að trúa því að hann sé orðinn 7 mánaða, finnst eins og ég hafi átt hann í gær hehehe;) hann er alltaf að þroskast meira og meira og þegar hann uppgötvar og gerir eitthvað nýtt fyllist mömmuhjartað af stolti, enda er hann yndislegastur!:haha:
svo keypti ég og Reynir okkur íbúð í Keflavík í nóvember, íbúðin á Hjallaveginum var orðin AÐEINS of lítil fyrir okkur, og ég sé sko ekki eftir því að hafa keypt hér og okkur líður mjög vel hérna:d samt alveg einkennilegt og bara hálf fyndið hvað sumum finnst langt að koma hingað og halda að það sé styttra fyrir mig að koma til þeirra hihi;)
orlofið mitt klárast í maí þannig ég stefni á að byrja að vinna i júni en ég er samt ekki komin með vinnu:s ótrúlegt hvað það er ekki auðvelt að finna vinnu til 16 á daginn hérna í KEF!! Ég er samt engan vegin tilbúin að fara að vinna frá snúllanum mínum, finnst frekar erfitt að fara að skilja hann eftir hjá dagmömmu, EN ég veit hann hefur gott að þessu;)
Ég er nett kvíðin OG hlakka til tímanna sem eru framundan, þetta er bara allt svo skrítið og búið að gerast hratt en ég veit að við eigum eftir að ráða auðveldlega við þetta:d

Ætla að setja inn nokkrar myndir af prinsinum mínum og stoltinu mínu:d

KANN samt ekki alveg að setja myndirnar almennilega inn þannig þetta verður að nægja í bili;)





Glænýr 


og svo yndislegur


3 vikna


2 mánaða







3 mánaða






4 mánaða







5 mánaða





6 mánaða


7 mánaða


OG önnur 7 mánaða

Jæja núna er ég hætt8)

Hafdís

» 3 hafa sagt sína skoðun

18.04.2007 20:02:51 / Unde

Blogg blogg blogg

Ég ætla að skrifa smá rimmu um seinustu helgi( þótt ég sé kannski frekar i seinni kanntinum með það) en allavegna...ég átti afmæli 13 apríl og þá var ég og Reynir líka búin að vera trúlofuð í 1 ár Jibbí:) Afmælisdagurinn minn var ekki sá allra skemmtilegasti!! Það var alveg greinilegt að það væri FÖSTUDAGURINN 13 afþví öll börninn í vinnunni voru crazy8| Var gjörsamlega meðvitundarlaus þegar ég kom heim en jafnaði mig fljótt því þegar ég kom heim gaf Reynir mér rosalega fallegann blómvönd og svo fékk ég pakka líka:o í pakkanum var I POD spilari og ég var ógó ánægð með það LOKSINS á ég I POD:!: Á laugardeginum fórum við á Hótel Örk og Reynir minn pantaði fyrir okkur í leirbað OOOOOOO það var ÆÐISLEGT!!!! og ef þið hafið ekki prófað það mæli ég 100% með því,geðveik slökun!! þegar við vorum búin í leirbaðinu fórum við í sturtu og svo fórum við í slökun, okkur var pakkað inn teppi og lak og lágum á bekk og var það ekkert smá þægilegt8) Litla krílið fór alveg á fullt um leið og ég lagðist á bekkinn og sparkaði og sparkaði í mömmu sína og var greinilega ekki sátt við þessa slökun í mér hehe:lol: við enduðum svo á því að fara í sund og ætlaði ég ekki að vilja fara upp úr!! hihi:) svo fórum við og skráðum okkur inn á hótelið og fórum í Eden og vorum bara eitthvaða að dingla okkur það sem eftir var dagsins, rosalega notó:) um 20 leytið fórum við að borða á hótelin og fengum 5 rétta máltíð NAMMI NAMM það var æðislegur matur og gat ekki klárað neinn af réttunum NEMA humarsúpuna,enda ELSKA ég líka humarsúpu!!:$ Þetta var æðisleg helgi og yndislegt að hafa átt svona rómantíska helgi með mínum heittelskaða og ég er alveg staðráðin í því að fara aftur í leirbað!

En annars er allt gott að frétta af okkur og litla krílinu,bumban mín er að stækka og stækka og finnst mér það bara æðislegt:) ég er mjög hress og hef ekkert til að kvarta yfir fyrir utan verki i rófubeini og ömurlegan brjóstsviða en brjóstsviðinn fylgir vist og maður harkar það bara af sér:) Við fögnum hverri viku sem líður því þá færumst við alltaf nær litla krúttinu okkar:D

En man ekki hvað ég ætlaði að skrifa meira er eitthvað svo tóm í hausnum núna 8|

BLE BLE

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

09.04.2007 13:16:39 / Unde

Gleðilega páska:)

Halló og gleðilega páska:)

Jæja það er allt gott að frétta af þessum bæ, erum bara búin að njóta þess að vera saman í páskafríi. Reynir átti að vera vinna eitthvað um páskana en sem betur fer gerði hann það ekki, ákvað að vera bara í fríi:) og ég var að sjálfsögðu mikið fegin!

Linda litla systir fermdist seinasta sunnudag og var það mjög fín veisla, Hún fékk að sjálfsögðu alveg hellings af pökkum og langaði mig svolítið að vera að fermast bara núna þegar ég sá allan peningin sem hún fékk hehe:lol: Finnst svo órúlegt að litla lúsin hafi verið að fermast, því það er svo stutt síðan að ég var að skipta á bleiju á henni hihi:)

En ég og Reynir fórum í 20 vikna sónarinn í seinustu viku og það var algjört ÆÐI! Litla krílið okkar var með allskonar kúnstir fyrir okkur og var það bara æðislega gaman:) Ég er farin að finna vel fyrir spörkunum í litla kriíinu okkar og er það yndisleg tilfinning að finna spörkin og líka að vita að það sé lítið líf að vaxa inn í manni:) Ég er alltaf að reyna að láta Reyni finna spörkin líka en það bregst ekki að alltaf þegar hann kemur með hendina á magan að þá hætti litla krílið alltaf, lítill stríðnispúki þar á ferð:) hehe en hann hlýtur að fara að finna spörkin bráðum!  Við vildum ekki fá að vita kynið í sónarnum, okkur finnst mikið meira spennandi að fá að sjá það þegar krílið okkar kemur í heiminn:) Þannig við þurfum bara að bíða spennt og sjá ;) Og núna erum við á fullu að leita okkur að íbúð og erum við búin að sjá nokkrar sem við getum hugsað okkur að kíkja á, get ekki beðið eftir að komast í OKKAR íbúð hehe:)

Núna styttist í 24 ára afmælið mitt (sjitt er að verða 24,finnst ég nýorðin 20) og 1 árs trúlofunarafmælið okkar það verður núna á föstudaginn 13 apríl:) (bara svona ef þið vilduð vita hvenær ég á afmæli) ;) og ætlum við að fara út að borða og hafa það næs á föstudaginn og svo á laugardaginn ætlum við að fara á Hótel Örk og borða þar og sofa þar yfir nóttina ooohhh ég hlakka til það verður svo gaman,hlakka til að komast aðeins út frá Reykjavíkinni:)

En jæja ætla ekki að hafa þetta lengra núna

CIAO

Hafdís og litla bumbukríli;) 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

16.03.2007 18:54:09 / Unde

VEIK.IS

Halló!!!! Vá allt of langt síðan ég bloggaði seinast;) En ekki hefur dagurinn verið svo góður hjá mér takk fyrir:S byrjaði i gær og hef reyndar verið alla vikuna að drepast úr kvefi og hori eins og öll þjóðin held ég!!8| Í gærkvöldi missti ég röddina og var bara í einhverju móki heima hjá mér, vaknaði í morgun fór fram úr og ætlaði að gera mig reddí í vinnuna en leið það illa að ég var bara heima. Fór svo bara aftur að sofa og komst ekki úr rúminu fyrr en um 3 og þá var lítið hægt að gera en að skríða upp í sófa...:$ en sem betur fer erum við með skrilljón myndir í tölvunni og ég verð að segja að Prison Brake hafi alveg reddað málunum..hihi8) Á að fara að vinna á morgun en ég held að ég verði nú bara inni alla helgina og nái þessu úr mér:S Svo er auðvitað ekki slæmt að eiga svona góðan mann sem hugsar alltaf svo vel um mann, og er alltaf að nudda mann þessi elska hehehe:lol: hann fór út i búð áðan og keypti handa mér fullt af ís og keypti svo handa mér páskaegg mmmm, en hann keypti nr 3 svo ég gæti borðað það núna;) hehe heppin ég en ég fæ sko stórt egg um páskana jammí;) (mæti halda að ég elska páskaegg) ;)

En fyrir utan þetta veikinda stúss er allt fínt að frétta af okkur og mikil hamingja í loftinu og við gætum ekki verið ánægðari með hlutina eins og þeir eru í dag hihi:D Og svo styttist óðum í 24 ára afmælið mitt og 1 árs trúlofunar afmælið okkar og ætlum við að gera eitthvað ógeðslega næs og hafa það kósí, erum jafnvel að pæla íði að eyða helginni á hóteli og hafa það næs og borða góðan mat hehehe:) Anywho núna ætla ég og Reynir minn að fara að gera pítsu mmmmmmmmm

Have a great weekend:lol: !!!!!!!!!!!

 

Dísa pæja sem er búin að missa röddina!!!


» 1 hafa sagt sína skoðun

14.01.2007 13:11:54 / Unde

6 ára í dag!

Ég og Reynir minn erum 6 ára í dag:) og mér finnst það bara hafa verið í gær þegar ég talaði við Reyni minn í fyrsta skipti á gamlárskvöld 2000,hafði ekki hugmynd um hver hann væri og hafði aldrei séð hann. Þá var hann á Dalvík með Kristín Ýr og Birgi og ég var að tala við Krissu og hún sagðist vera búin að finna handa mér kærasta og rétti Reyni símann og við vorum eitthvað að spjalla,voða gaman og ég hélt að ég mundi aldrei sjá þennan gaur en jújú ég sá hann í fyrsta skiptið á Broadway eftir þetta,það var einhvern tímann eftir gamlárskvöld á balli með Sálinni. Var ég frekar ölvuð og í svarta kjólnum mínum með glimmerinu á :lol: ekki nóg með það heldur datt ég niður stigann á Broadway og gerði ýmislegt fáranlegt þetta kvöld eins og að drekka úr bjórflösku sem einhver annar átti og ekki nóg með það heldur var búið að aska í hana8| og já þetta gerði ég fyrir framan nefið á honum og ég hélt að hann mundi aldrei tala við mig aftur hihihi:!:
En jú jú hann var eins og slefandi hundur á eftir mér( og ég reyndar á eftir honum líka) og eftir þetta erum við búin að ganga í gegnum súrt og sætt og aldrei verið eins ástfangin og í dag:) og man ég mjög sterklega eftir fysta kossinum okkar:lol: og mín brosti hringinn:) Hringdi strax í Krístín Ýr daginn eftir og sagði henni tíðindin hehe
Svo á afmælisdeginum mínum 13.apríl 2006 að þá fór þessi elska á hnén og bað mig að trúlofast sér og láku niður þó nokkur tár úr augum mínum..og hann var svo yndislega rómantískur og sætur þegar hann bað mig að trúlofast sér:) og er maður svo farin að huga að giftingu.................................... djók..ekki alveg strax en ÉG er samt aðeins farin að pæla í því hehehe :) en það er alveg góður tími til að pæla í því..
Ég er endalaust þakklát fyrir að hafa hitt hann Reyni minn og vona ég að ég verðum saman alla ævi,allavegna ætla ég ekki að sleppa honum hehehe og ég veit að hann sleppir mér ekkert:lol: Við ætlum að fara út að borða í kvöld og hafa það kósí og rifja upp gamla tíma:lol: hihi
Svo á næstunni erum við að fara að kaupa okkur íbúð og það SKAL gerast á þessu ári því okkur miðar ágætlega í þá átt:) erum búin að skoða fullt af íbúðum og hver veit nema eftir nokkra mánuði að þá eru við komin i okkar eigin íbúð:) get ekki beðið eftir að búa saman í okkar eigin íbúð, það verður algjör draumur:)
En jæja ætla að fara að knúsa minn yndislega og heittelskaða unnusta:D

DÍSA

» 5 hafa sagt sína skoðun

24.12.2006 18:35:58 / Unde

Gleðileg jól

Jæja núna er ég komin upp á Skaga til múttu minnar og er að hafa það svo fínt:) það er auðvitað alltaf jafn mikið fjör hérna og aldrei logn á þesum bæ hihi:lol: ég get ekki beðið eftir kvöldinu, það verður sko fjör og læti þá :lol:
En ég vill óska öllum gleðilegra jóla og vona að allir hafi það æðislega gott um jólin:)

Jólaknús
HAFDÍS

» 1 hafa sagt sína skoðun

10.12.2006 17:49:59 / Unde

SKOOO!!!!

Þið bloggþyrsta fólk sem gerið ekkert annað en að suða um blogg og segja að maður sé að halda fram hjá blogginu sínu og svona það er bara RUGL!!! en samt ég veit er orðin algjör pæja og komin með myspace en kom on samt sko..:) en ég vona að bloggið og þið hin fyrirgefið mér??? en allavegna ég ætla að hafa þetta bara stutt,hef ekki alveg komist í gírin til að setjast niður og skrifa einhverja ræmu:lol: en allavegna er allt gott að frétta er búin að skreyta helling og kem til með að klára það í vikunni:) er ekki búin að kaupa neina jólagjafir8|en ég geri það i vikunni og um næstu helgi, og ég sem ætlaði að vera svo snemma í því, og svo er ég bara í próflestri þessa dagana...er að fara í ensku á morgun:|ógó kvíðin sko..og svo íslensku á miðvikudag..og þarf svo að taka 3 próf á netinu og býst við að klára það bara í vikunni....ég vona að ég falli ekki!!! þá fer ég að skæla:cry:
en nóg í bili þarf að fara að lesa lesa og lesa......

Adios my friends:)

Dísa


» 3 hafa sagt sína skoðun

07.11.2006 22:29:18 / Unde

Smá spurningar....svara takk;)

1. Hver ert þú?
2. Erum við vinir?
3. Hvenær hittumst við fyrst og hvernig?
4. Ertu hrifin/nn af mér?
5. Langar þig að kyssa mig?
6. Láttu mig hafa gælunafn og útskýrðu afhverju þú valdir það.
7. Lýstu mér í einu orði.
8. Hvernig leist þér á mig þegar þú sást mig fyrst?
9. Lýst þér ennþá þannig á mig?
10. Hvað minnir þig á mig?
11. Ef þú gætir gefið mér eitthvað hvað myndi það vera?
12. Hversu vel þekkiru mig?
13. Hvenær sástu mig síðast?
14. Hefur þig einhvern tímann langað til að segja mér eitthvað en ekki getað það?
15. Ætlaru að setja þetta á bloggið þitt svo ég geti skrifað um þig?

Allir að svara þessu í comment;) Ble ble

» 10 hafa sagt sína skoðun

03.11.2006 18:11:27 / Unde

SKRÝTIN LÖG!!!!!

Skrýtin lög !
Hver getur gleymt sögunni um konuna sem setti köttinn sinn inn í örbylgjuofninn, kærði fyrirtækið og vann málið á þeim forsendum að það stæði ekki í leiðbeiningunum að það mætti ekki setja dýr inn í ofninn. Þar af leiðandi hafa hin ýmsu lönd tekið til sinna ráða, og sett fáránlegustu lög til að koma í veg fyrir misskilning af þessu tagi. Hér koma nokkur af þeim....check it out

Í Ástralíu er bannað að stunda kynlíf með kengúrum auk þess sem bannað er að eiga rúm á ákveðnum stöðum án tilskilinna leyfa. Almennir borgarar mega heldur ekki skipta um ljósaperur. Löggiltir rafvirkjar mega einir gera slíkt.
Það fáránlegasta af þessu öllu saman er kannski það að í bænum Victoria er bannað að vera í bleikum stuttbuxum eftir hádegi á sunnudögum.híhíhí
Í bænum Santa Cruz í Bólivíu er bannað að stunda kynlíf með móður og dóttur á sama tíma. (ojojojojojojojojoj)
Kanada búum er bannað að stíga um borð í flugvél eftir að hún er farin á loft. Það er líka ólöglegt að fjarlægja plástur og önnur sárabindi opinberlega. Í bæ einum segja lögin enn fremur til um að þegar fangi losnar úr fangelsi skal honum afhent hlaðin byssa ásamt hesti svo hann geti riðið út úr bænum sem fyrst.
Íbúum Calgary er bannað að kasta snjóboltum án þess að hafa sérstakt leyfi frá bæjarstjóra og í Nova Scotia er bannað að vökva garða þegar það rignir. Þar er jafnframt bannað að prumpa á meðan maður reykir en í bænum Oxbridge er bannað að hafa internettengingu sem er öflugri en 56k.
Í Kólumbíska bænum Cali mega konur aðeins stunda kynlíf með eiginmanni sínum og þegar það gerist í fyrsta skipti skal móðir konunnar vera viðstödd.
Enskum konum er bannað að borða súkkulaði í almenningssamgöngutækjum, s.s. lestum og strætisvögnum. Það er líka bannað að borða bökur á jóladag og svo mega eiginmenn alls ekki lemja konur sínar eftir kl. 21 á kvöldin. WHAT!
Í Frakklandi er bannað að kyssast á járnbrautastöðvum og þarlendir svínabændur mega ekki undir neinum kringumstæðum kalla svínið sitt Napóleon.
Í Indónesíu liggur dauðarefsing við sjálfsfróun.
Ítalskir karlmenn mega ekki ganga um í kjólum. Ef þeir gera það eiga þeir á hættu að verða handteknir. Það er líka bannað að blóta opinberlega og í vissum héröðum mega konur sem heita María ekki stunda vændi.
Í Líbanon mega menn stunda kynlíf með dýrum svo framarlega sem dýrið er kvenkyns. Ef það er karlkyns liggur dauðarefsing við brotinu. Í Sádí-Arabíu mega karlkyns læknar ekki meðhöndla konur. Lögin segja jafnframt að konur megi ekki gerast læknar. (eiga konurnar þá bara að drepast eða hvað?)
Í Sviss mega menn ekki pissa standandi eftir kl. 22 og heldur ekki hengja upp þvott utandyra, þvo bíla eða slá gras á sunnudögum. Þá liggja sektir við því að gleyma lyklum í ólæstum bílum.
Í Singapore eru munnmök með öllu ólögleg auk þess sem samkynhneigð er alls ekki leyfð. Ennfremur er allt klám bannað og fólk má ekki ganga um nakið heima hjá sér þar sem það er talið til kláms.
Í Skotlandi segja lögin að ef einhver bankar upp á og biður um að fá að nota klósett þá skal hann fá að gera það ella hljóti húsráðandi sektir.
Í Tælandi er ólöglegt að fara út úr húsi án þess að vera í nærfötum.
Í Alabama er bannað að keyra með bundið fyrir augun og það má heldur ekki sigla bátum á götunum. Það furðulegasta er samt að fólk má ekki vera með vöffluís í rassvasanum! Íbúum Alaska er mjög umhugað um elgina sína og þar af leiðandi stendur það í lögum að ekki megi láta þá hanga úr flugvél. Það má heldur ekki henda þeim út úr flugvélum eða gefa þeim áfengi.
Asnar mega ekki sofa í baðkörum í Arizona og þar að auki er ólöglegt að hafa fleiri en tvö kynlífshjálpartæki á einu og sama heimilinu.
Í Maricoba County mega svo ekki fleiri en 6 stúlkur búa í sama húsinu.
Í Arkansas eru munnmök bönnuð og ekki má geyma krókódíla í baðkörum. Þar að auki er ólöglegt að bera nafn ríkisins vitlaust fram. Til að setja upp músagildrur þurfa menn að hafa veiðileyfi í Kaliforníu. Þar hafa páfuglar líka forgang í umferðinni, nema þeir séu á vappi í innkeyrslum fólks.
Í Baldwin Park er bannað að hjóla í sundfötum og sums staðar verða menn að eiga minnst tvær kýr ef þeir ætla að ganga um í kúrekastígvélum. Þá liggur allt að 500$ sekt við því að nota kjarnorkuvopn innan bæjarmarka Chico og í Los Angeles er bannað að þvo tvö ungbörn í sama baðkarinu. Einnig er bannað að eiga flóðhesta en ef menn ætla út að labba með fílinn sinn verður hann að vera í bandi. Að lokum er bannað að þvo bílinn sinn með nærfötum.
Florida búar mega ekki stunda kynlíf með broddgöltum og alls ekki reka við opinberlega eftir kl. 18 á kvöldin. Þá mega ógiftar konur ekki stunda fallhlífarstökk á sunnudögum og það er bannað að fara í sturtu nakinn. Eiginmenn mega heldur ekki kyssa brjóst konu sinnar og þar er líka bannað að syngja á meðan maður er í sundfötum.
Lögreglumenn í connecticut hafa leyfi til að stöðva hjólreiðamenn ef þeir fara yfir 100 km hraða og í bænum Devon er bannað að labba aftur á bak eftir myrkur.
Þegar fólk fer í messu á sunnudögum í Georgiu skal bera hlaðinn rifill á sér og allir íbúar þar skulu minnst eiga eina grashrífu á mann. Þar má heldur ekki binda gíraffann sinn við ljósastaur.
Í bænum Marietta var bannað að hrækja út úr fólksbílum og strætó en það má hrækja ef maður er á vörubíl. Enn eru lög í gildi í Illinois sem banna fólki að tala ensku og þar liggja líka sektir við að pissa upp í munn nágranna síns.
Chicagobúar hafa heldur ekki leyfi til að veiða í náttfötunum eða gefa hundinum sínum viskí. Hins vegar má fólk undir 17 ára aldri mótmæla nakið fyrir framan ráðhúsið, svo framarlega sem það hefur leyfi foreldra sinna, og dýr geta fengið fangelsisvist eins og fólk. T.d. var api dæmdur í 5 daga fangelsi fyrir búðarhnupl.
Í bænum Oblong er svo stranglega bannað að stunda kynlíf á meðan maður er að veiða á brúðkaupsdaginn sinn og þar eru skrímsli heldur ekki leyfð innan bæjarmarkanna.
Talan Pí er venjulega um 3,14 nema í Indianaríki þar sem hún er skv. lögum 4. Þar er öpum líka bannað að reykja og svörtum köttum er skylt að vera með klukku um hálsinn ef það er föstudagurinn 13.
Í Lowa mega kossar ekki vara lengur en 5 mínútur í senn og einhentir píanóleikarar mega ekki krefjast greiðslu fyrir vinnu sína. Jafnframt er slökkviliðsmönnum skylt að æfa sig í minnst 15 mínútur áður en þeir leggja af stað í brunaútkall og að auki mega hestar ekki borða brunahana. Hænsnaþjófar mega ekki stunda ,,vinnu" sína á nóttunni í Kansas en þar er líka bannað að veiða fisk með berum höndum.
Lög í Kentucky segja að maður teljist edrú uns hann stendur ekki lengur í lappirnar og þar er líka skylda að fara í bað einu sinni á ári. Konur mega heldur ekki kaupa hatta án samþykkis eiginmanns síns og ólöglegt er að þiggja endaþarmssamfarir. Þar má heldur ekki binda krókódíla við brunahana.
Í Massachusetts er bannað að borða meira en 3 samlokur í jarðarför og ljón mega ekki fara með eigendum sínum í bíó. Górillur mega heldur ekki sitja í aftursæti bíla.

HEHEHE ...........Takk fyrir lánið Melanie;)

» 3 hafa sagt sína skoðun

01.11.2006 19:43:42 / Unde

ONE TREE HILLLLLLLLLLLL

Já gott fólk þið heyrðuð rétt, One Tree Hill er að byrja!!!! Missti næstum því legvatnið við að heyra þessar ánægjufréttir:lol: get ekki beðið eftir mánudeginum...seinasti þáttur endaði svo spennandi!!! Skildi Nathan drukkna ó nei vona ekki hvað verður þá um Haley??hver skildi vera ólétt??? þið sem munið ekki eftir seinasta þætti að þá fengu allar brúðarmeyjarnar eins tösku til að vera með í brúðkaupi Haley og Nathan og í einni töskunni var jákvætt óléttupróf og það kom aldrei í ljós hver það var...ooohhhh er svo spennt;) já ég veit ég er geðveik og gjörsamlega forfallin One tree hill aðdáandi:) og svo er ekki verra að horfa á hann Lukas,hann er svo sætur eitthvað greyið,alltaf svo góður og æðislegur. En hann er víst ekki Mr. Niceguy í alvörunni sko! hann hélt framhjá Rachel (Brook) sem er by the way konan hans í alvörunni (eða var konan hans) með druslunni henni Paris Hilton!!!! HALLÓ MAÐUR dastu á hausinn eða!!! hvað var gaurinn að spá??? Þið kallmenn þarna úti sem fýlið Paris eru eitthvað tómir í hausnum án djóks, hún er ömurleg dekurófa sem treður sér allstaðar, og svo var hún að reyna að gerast söngkona8| hahahaha fólk kaupir bara plötuna hennar afþví hún er Paris Hilton og er ógó rík og afþvi það lak út klámmyndband með henni og kærastanum hennar þar sem hún var að glenna sig (nei er ekki búin að sjá það)!!!:lol:jæja ætla ekki að segja meir því það gæti skaðað viðkvæmar sálir híhíhí:S

Pössuninn á Skaganum gekk vel og mamma og Óðinn komu til mín í gær og keyptu yndisleg mjúk og æðisleg Snoopy náttföt,þau eru æði var í þeim í gær og langaði helst ekki að fara úr þeim heheh og svo fóru þau í Zöru og keyptu æðislega flotta peysu á mig og ég var svo ógó ánægð, þessi peysa er alveg ekta ég:) TAKK FYRIR MIG MAMMA OG ÓÐINN:) Ég er svo búin að taka bæði prófin í Snorra Eddu fékk 8 og 9 á prófunum:lol: en á samt alveg slatta eftir í lærdómnum....shit er frekar stressuð!!!! en þetta verður allt saman að koma í ljós...

Setti inn einhverjar myndir(eða þær sem ég gat sett inn) var að reyna að setja inn helling en það náðist ekki að lesa fullt af myndum og ég er ógó fúl, því það eru svo margar myndir sem ég vill setja hér inn en þetta verður að nægja í bili....8)

En núna ætla að fara að klára að horfa á Melrose;)

P.S muna að skrifa í gestó,enga leti hér sko,u can do it-put u'r ass in to it;)

ADIOS AMIGOS

DÍSA SKVÍSA;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

29.10.2006 16:28:12 / Unde

Húsmóðir óttans!!

ÖÖÖSSSS stelpan er þokkalega að standa sig í húsmóðurhlutverkinu, þarf að elda mat,setja í vél,taka til og setja í uppþvottavél;);) og ég ætlaði bara ekki að trúa því hvað ég þarf að setja í margar vélar á dag8| núna veit ég hvað mamma er að meina þegar hún segist alltaf vera að þvo hehehe en svona er þetta víst þegar það eru 3 unglingar á heimilinu:| en þetta er bara gaman maður situr allavegna ekki aðgerðarlaus á meðan híhíhí:lol: held að ég yrði bara ágætis húsmóðir, held að ég sé löngu búin að sanna það!!

En ég er búin að vera að skoða bókina Spámaðurinn sem er by the way SNILLDAR bók, Erna gaf mér hana í ammælisgjöf fyrir nokkrum árum og ég elska þessa bók:!: Þetta eru nokkurskonar órímuð ljóð í bókinni og ég er ekki mjög mikið fyrir ljóð en ég elska þessa bók og veit ég að margir eru sammála mér um það..og ef þið hafið ekki lesið hana mæli ég með að þið verðið ykkur út um 1 eintak af bókinni. Það er talað um allt í þessari bók og þú getur fundið ýmsar kenningar um allskonar hluti eins og t.d. ást,börn,vinnu og ýmislegt fleirra..svo las ég kaflann um gleði og sorg, undanfarið hafa mjög margir í kringum mann lent í sorg á meðan aðrir lent í eintómri gleði. 

"ÞÁ SAGÐI KONA EIN:                                                                                       

Talaðu við okkur um gleði og sorg. Og hann svaraði:  Sorgin er gríma gleðinnar. Og lindin, sem er uppspretta gleðinnar, var oft full af tárum. Og hvernig ætti það öðruvísi að vera? Þeim mun dýpra sem sorgin grefur sig í hjarta manns, þeim mun meiri gleði getur það rúmað. Er  ekki bikarinn, sem geymir vín þitt, brenndur í eldi smiðjunnar? Og var ekki hljóðpípan, sem mildar skap þitt, holuð að innan með hnífum? Skoðaðu hug þinn vel, þegar þú ert glaður,og þú munt sjá ,að aðeins það, sem valdið hefur hryggð þinni, gerir þig glaðan. Þegar þú ert sorgmæddur, skoðaðu þá aftur huga þinn, og þú munt sjá, að þú grætur vegna þess, sem var gleði þín. Sum ykkar segja: " Í heimi hér er meira af gleði en sorg, "og aðrir segja : " Nei, sorgirnar eru fleiri." En ég segi þér, sorgin og gleðin ferðast saman að húsi þínu, og þegar önnur situr við borð þitt, sefur hin í rúmi þínu. Þú vegur salt milli gleði og sorgar. Jafnvægi nærð þú aðeins á þínum dauðu stundum. Þegar sál þín vegur gull sitt og silfur á metaskálum, hlýtur gleðin og sorgin að koma og fara.


» 4 hafa sagt sína skoðun

28.10.2006 13:34:42 / Unde

Hamingju óskir

Jæja núna er ég upp á Skaga að passa alla gríslingana og verð ég hér fram á þriðjudag. Mamma og Óðinn skelltu sér til Rotterdam, þau eru ekki búin að fara til útlanda í ein 7 ár þannig það var komin tími til:lol: Þau áttu 14 ára brúðkaupsafmæli í gær vá pælið í því 14 ár:) TILHAMINGJU MEÐ BRÚÐKAUPSAFMÆLIÐ MAMMA OG ÓÐINN:lol: var að talað við múttu áðan og ég held að hún sé að missa sig í kaupgleðinni híhíhí...hún hringdi í mig í gærkvöldi og tilkynnti mér það að hún hafði fundið 4 H&M búðir og vá hvað ég skil hana ég væri sko til í að fara í þær allar hehe.

En litli brósi minn var 11 ára á fimmtudaginn 26 október, finnst svo stutt síðan hann var á bleiju og sagði bara gaga, fór og keypti handa honum Arsenal sængurverasett og hann brosti út af eyrum:) uppáhaldsliðið hans er auðvitað Arsenal hehehe og Reynir er mjög ánægður að hann haldi með Arsenal:lol:  en  TILHAMINGJU MEÐ AMMÆLIÐ LITLI BRÓ:)

Svo er ég með enn önnur gleðitíðindin Kristín Ýr og Garðar eignuðust litla prinsessu á þriðjudaginn 24 október:) Litla daman var 11 merkur og 47 cm :lol: og hún er alveg yndisleg og svo falleg!! Nú er Kristín orðin 2 barna móðir hihi mér finnst það svo yndislegt en ELSKU KRISTÍN,GARÐAR og ÁGÚSTA BORG INNILEGA TILHAMINGJU MEÐ LITLU PRINSESSUNA:)

Vá ég er á fullu að óska fólki til hamingju hehe er ég nokkuð að gleyma einhverju? vona ekki því þá er það ekkert persónulegt;) en annars er ég og yndislegi unnusti minn bara að leita okkur að íbúð..okkur langar svo að kaupa okkur erum bara ekki alltaf sammála um staðsetningu hihi en við hljótum að finna út úr því;) en ég er komin soldið eftir á í skólanum vegna ýmissa atriða og ætla ég að reyna að vinna eitthvað upp um helgina...er orðin frekar stressuð8| finnst ég bara ekki getað einbeitt mér að neinu þessa dagana og er eitthvað voða tóm eitthvað:( en jæja ætla að fara að fá mér einn góðan kaffibolla uummmm:D

LATER

DÍSA


» 0 hafa sagt sína skoðun

13.10.2006 23:41:01 / Unde

Long time long

Hellú.....long time long blogg :) hehe ákvað að skella inn smá bloggi þótt ég hafi nú ekki það mikið að segja frá líðandi viku...ekki neitt svaka mikið af frétta sko AFHVERJU?? afþví ég hef ekki gert neitt alla vikuna annað en að vakna,vinna,vera skapvond með mígreni,borða og sofa já!!!!:S er að verða brjáluð... langar mest að panta mér eitt stykki utanlandsferð og fara aðeins til útlada með Reyni mínum og aðeins gleyma mér hhhhmmmmm og audda versla:lol: sé ekki alveg fram á það að við séum að fara út á leik afþví við erum ekki enn búin að fá svar BUHU og ég spyr hvað er málið? þeir í klúbbnum segjast ekki hafa fengið nógu marga miða hhhmmmm ég meina HALLÓ DING DONG var ekki verið opna 60.000 manna völl:!: ANYWAY......

Það sem ég þarf að gera alla helgina er bara LÆRA LÆRA LÆRA..þarf að skila inn ritgerð um helgina og þarf að læra fyrir 2 próf úúúffff good luck to me hehehehe:lol: það er allt brjálað að gera hjá mér í skólanum og það sem ég hef mest áhyggjur af er að ganga ekki vel í prófunum er strax orðin kvíðin:S en maður verður bara að peppa sig upp og standa sig..híhíhí þetta hlýtur að takast hjá stelpunni;)

Elfa og Jenni eignuðust litla prinsessu í gær 14 merkur og 51,5 cm:) TILHAMINGJU MEÐ LITLU PRINSESSUNA ELSKU ELFA OG JENNI OG VELKOMIN Í HEIMINN LITLA SNÚLLA:):) er búin að sjá myndir af snúllunni og hún er gullfalleg og fullkomin, get ekki beðið eftir að knúsa hana:D

En jæja er að pæla í að slútta þessu, dettur ekkert meira í hug til að segja...er að pæla bara í því að fara að lúlla bráðum er að leka niður og þarf líka að vakna snemma í fyrró til að fara í naglalagfæringu oooohhh er svo mikil pæja hihi;) svo er hann Reynir minn í fríi í fyrsta sinn á laugardegi í margar margar vikur þannig ég get kúrað með honum aðeins lengur á morgun:)

Bless bless étið kex klukkan sex (vá ég er svo hugmyndarík) hehe

BLE BLE DÍSA8)


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
Heimsóknir
Í dag:  6  Alls: 17622
Klukkan
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti
Myndasöfn